
Með lífið í lúkunum
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.
Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Með lífið í lúkunum
Núvitund- 4 mínútna hleðsla (Heilsumoli 24)
Þú getur nýtt þér þessa örstuttu núvitundaræfingu þegar þú átt erfitt með að einbeita þér eða þarft aðeins að taka þér hugrænt hlé og ,,hlaða batteríiin þín".
Núvitund er hugtak sem lýsir þeirri athygli sem við beinum viljandi að því sem er að gerast hér og nú, á hlutlausan og opinn hátt.
Núvitund felur í sér að:
- Vera í meðvitund
- Veita athygli t.d. öndun, líkamshlutum, hugsunum eða tilfinningum.
- Ekki dæma það sem við verðum vör við heldur taka eftir því eins og það er, án þess að flokka sem gott eða slæmt.
- Snúa aftur að núinu þegar hugurinn reikar, sem hann gerir eðlilega.
Rannsóknir hafa sýnt fram á að núvitund:
- Minnkar streitu og kvíða
- Bætir einbeitingu og svefn
- Eykur vellíðan og sjálfsvitund
- Hjálpar við að takast á við erfiðar tilfinningar
Ef þér þykir þetta gagnlegt getur þú fundið fleiri svipaðar æfingar í hlaðvarpinu:
Öndunaræfing 4-7-8. (Heilsumoli 3)
Hugleiðsla- ferðalag um líkamann. (Heilsumoli 5)
Stutt slökunaræfing- hugræn hvíld. (Heilsumoli 10)
Hugleiðsla fyrir svefninn. (Heilsumoli 12)
Núvitund - 7 mínútna sitjandi hugleiðsla. (Heilsumoli 14)
Djúpslökun- 35 mínútur. (Heilsumoli 15)
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!