.png)
Með lífið í lúkunum
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.
Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Með lífið í lúkunum
Gagnsemi kísils og GeoSilica. (Heilsumoli 18)
Á næstu vikum mun ég kynna dygga samstarfsaðila hlaðvarpsins með stuttum Heilsumolum í hlaðvarpinu.
Fyrst í spjall til mín var Steinunn Ósk Valsdóttir, markaðsstjóri Geo Silica sem er nýjasti samstarfsaðilinn.
Steinunn segir okkur frá fyrirtækinu og gagnsemi kísils en GeoSilica® framleiðir náttúruleg fæðubótarefni í vökvaformi til daglegrar inntöku, sem hjálpa til við endurnýjun líkamans frá toppi til táar.
Fyrirtækið vinnur steinefni úr jarðhitasvæðum Íslands með byltingarkenndri framleiðsluaðferð og þróar 100% náttúrulegar og vegan-vottaðar gæðavörur. Kísill er eitt algengasta steinefni heims og finnst víðsvegar í náttúrunni.
Hlustendur fá 15% afslátt í netverslun GeoSilica með kóðanum Heilsuerla
Áhugasamir geta fundið GeoSilica á Instagram og Facebook
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!