Með lífið í lúkunum
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.
Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Með lífið í lúkunum
Heilsumoli 11. Tíu atriði sem geta bætt heilsuna strax í dag.
Í þessum stutta heilsumola tel ég upp tíu atriði sem þú getur tileinkað þér til þess að hafa góð áhrif á eigin heilsu.
Ég tel heildræna nálgun bestu leiðina til að njóta góðrar heilsu. Hér eru nokkur atriði sem þú getur gert strax í dag til þess að bæta heilsuna.
- Skipulegðu vikuna
- Hreyfðu þig daglega
- Farðu að sofa á ákveðnum tíma á hverju kvöldi (rútína)
- Borðaðu meira grænmeti
- Minnkaðu sykurneyslu
- Drekktu meira vatn
- Burstaðu tennurnar fljótlega eftir kvöldmat
- Gerðu vikumatseðil
- Ræktaðu samband þitt við vini og fjölskyldu
- Stundaðu þakklæti
Þessi samantekt er tekin af Instagram síðu minni HeilsuErla.
Hvaða atriði þarft þú að bæta?
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!