
Með lífið í lúkunum
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.
Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Með lífið í lúkunum
Stutt slökunaræfing- hugræn hvíld. (Heilsumoli 10)
5 mínútna slökunaræfing sem er tilvalin til þess að ná smá hugrænni hvíld í amstri dagsins. Það er svo ótal margt í umhverfi okkar sem stelur athygli okkar og því er nauðsynlegt að taka sér hlé nokkrum sinnum yfir daginn til þess að líta inn á við og gefa heilanum smá hvíld frá nýjum upplýsingum.
Þá getur verið gott að nýta sér slökunaræfingar, öndunaræfingar, hugleiðslur eða núvitundaræfingar.
Í þessari stuttu og einföldu slökunaræfingu spennum við og slökum á líkamshlutum til skiptis, tökum eftir því hvernig okkur líður og erum í núvitund. Þannig náum við að hægja á öndun og róa taugakerfið.
Njótið vel!
Kveðja Erla
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!