Með lífið í lúkunum
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.
Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Með lífið í lúkunum
21. Að lifa tilgangsríku lífi. Trú og heilsa. Bjarni Karlsson og Jóna Hrönn Bolladóttir
Í þættinum ræðir Erla við hjónin Bjarna Karlsson og Jónu Hrönn Bolladóttur um lífið, preststarfið, hegðun, mótbyr og meðbyr í trú á Íslandi, samkennd, hörmungarnar í Grindavík, hjónabandið, lýðheilsu og margt fleira. Bjarni og Jóna Hrönn eru bæði prestar og leiðir þeirra lágu saman í guðfræðideildinni í Háskóla Íslands fyrir nokkrum áratugum.
Jóna Hrönn hefur starfað sem prestur í 40 ár og er nú sóknarprestur í Garðaprestakalli. Hún telur það lýðheilsumál að efla almenna kurteisi og virðingu því að fólk leyfi sér stór orð og miklar yfirlýsingar um ýmis málefni og þá sérstaklega presta og trú. Jóna Hrönn segist þó alltaf vera stolt af því að tilheyra þessari þjóð og að Íslendingar séu meira í verki en orði og standi saman þegar í harðbakkann slær.
Jóna Hrönn segir bæn vera andardrátt trúarinnar og að bæn hafi haft mikil jákvæð áhrif á hennar heilsu í gegnum tíðina.
Bjarni starfar við sálgæslu hjá Haf auk þess sem hann annast útfarir, hjónavígslur, skírnir og önnur prestsverk. Hann segir að aðal inntak allrar heilsu sé að lifa innihaldsríku lífi og að við séum eina dýrategundin sem getur dáið af tilgangsleysi. Bjarni segir jafnfram að það að hafa heilsu til líkama, sálar og anda sé kjarni málsins og að hver og einn beri ábyrgð á eigin heilsu. Einlæg heilbrigð trú er heilsueflandi, hún er lífgefandi, líka frá sálfræðilegu og læknisfræðilegu sjórnarhorni.
Bjarni gaf nýverið út bókina Bati frá tilgangsleysi sem er bók á sviði sálgæslu og siðfræði sem ætluð er hinum almenna lesanda og fjallar um rannsóknarefni hans; fátækt og vistkerfisvanda í víðu samhengi.
Þátturinn er í boði Hjá Hrafnhildi þar sem þú finnur mikið úrval af fallegum gæðafatnaði fyrir konur á öllum aldri hvort sem það er sparidress, skór eða hversdagsfatnaður.
Hjá Hrafnhildi á Instagram
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!