Með lífið í lúkunum

Heilsumoli 13. 10 ráð til að nærast betur.

April 27, 2024 HeilsuErla Season 1
Heilsumoli 13. 10 ráð til að nærast betur.
Með lífið í lúkunum
More Info
Með lífið í lúkunum
Heilsumoli 13. 10 ráð til að nærast betur.
Apr 27, 2024 Season 1
HeilsuErla

Til þess að finna jafnvægi í lífinu þarf að huga að næringu, bæði frumnæringu og því sem við setjum á diskinn. Frumnæring er allt það sem nærir okkur annað en matur og felst í okkar daglegu athöfnum. Það er okkur lífsnauðsynlegt að staldra við og endurskoða samskipti, atvinnu, hreyfingu, andlegt jafnvægi og fleira. 

Við vanmetum oft þessa þætti, teljum ekki til næringar og veitum því sjaldnast athygli hvernig okkur líður. Ef við viljum bæta heilsuna þurfum við að skoða alla þætti sem hafa áhrif á hana og meta hvar við erum í ójafnvægi. Það er nefnilega oftast þannig að ef við erum í ójafnvægi á einu ,,sviði” smitar það yfir á annað og okkur líður ekki nóg vel andlega og líkamlega. Það er t.d. þekkt af ef þú ert í sambandi sem gengur á afturfótunum eða óánægð/ur í vinnunni er líklegra að þú huggir þig með óhollum mat. Með því að vinna í þeim þáttum sem eru raunverulega að hafa neikvæð áhrif á heilsu okkar finnum við smám saman jafnvægi á öllum vígstöðvum.

Þó svo að frumnæringin sé mikilvægust þá er að sjálfsögðu líka mikilvægt að velja góða næringu á diskinn. Hér eru nokkrir punktar sem geta auðveldað þér að borða betur. Farið er yfir hvern og einn í Heilsumolanum (hlaðvarpsþættinum). 

  1. Borðum til að nærast vel
  2. Veljum fjölbreutta fæðu
  3. M&M- meira grænmeti og minni sykur
  4. Borðum mat- ekki matarlíki
  5. Veljum hreina fæðu sem oftast
  6. Skoðum innihaldslýsingar
  7. 90/10 reglan (eða 80/20)
  8. Forðumst öfga
  9. Engin boð og bönn
  10. Drekkum vatn

Sendu HeilsuErlu skilaboð

Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Show Notes