Með lífið í lúkunum
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.
Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Með lífið í lúkunum
29. Getum við lært að þekkja og skilja okkur sjálf betur með aðstoð stjörnuspeki? Gísli Gunnarsson
Í þættinum ræðir Erla við Gísla Gunnarsson, stjörnuspeking um það hvernig stjörnuspeki getur verið tækifæri og verkfæri til þess að kynnast sjálfum sér til vaxtar.
Gísli segir stjörnuspeki snúast um sjálfsþekkingu og vera frábært verkfæri til þess að gera okkur ljóst hvernig við erum frábrugðin öðrum og hvernig við erum sérstök. Stjörnuspeki getur aukið meðvitund á tilfinningalífinu, hvernig þú ert sem karakter og hvernig þú hugsar því að við getum nýtt okkur upplýsingarnar til þess að læra að þekkja og skilja okkur sjálf betur. Stjörnuspekin getur hjálpað okkur að skilja orkuna sem við upplifum í samskiptum við aðra og almennt í lífinu innra með okkur.
Gísli vill að allir kynnist sjálfum sér betur og átti sig á því hverjir þeir eru og hvað það er sem nærir þá. Því meiri tíma sem þú verð með sjálfum þér, í að pæla í þér, hver þú ert og hvernig þú ert frábrugðin öðrum þá áttu meiri færni og séns á því að átta þig á því hvað þú vilt!
Hver og einn mótast eftir sínu umhverfi og aðstæðum, stjörnuspekin getur hjálpað okkur að átta okkur á því hver við erum burtséð frá öllum þáttunum sem hafa breytt manni og haft áhrif á mann!
Gísli telur heilsu vera það að þekkja sjálfan sig og standa með sjálfum sér. Að hans mati snýst þetta allt um að líða vel og vera í sátt við sjálfan sig. Stjörnuspeki getur verið frábært verkfæri til þess að hjálpa við það.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!