Með lífið í lúkunum
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.
Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Með lífið í lúkunum
121. Það velur enginn að vera með offitu. (Sjúkdómurinn offita, megrunarmenning, matarsuð, átkastaröskun og fordómar). Rut Eiríksdóttir
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
í þættinum ræðir Erla við Rut Eiríksdóttur hjúkrunarfræðing um sjúkdóminn offitu.
Rut segir frá megrunarmenningu í æsku, erfiðum bróðurmissi og hvers vegna hún stofnaði SFO samtök fólks með offitu. Þær stöllur ræða um skilgreininguna á sjúkdómnum, hlutverk erfða og umhverfis, matarsuð, átkastaröskun og fordóma.
Rut hefur glímt við offitusjúkdómin frá barnæsku og alin upp í megrunarmenningu. Aðeins þrettán ára gömul þróaði Rut með sér átröskun og eftir að hafa barist áfram í áraraðir og prófað alla megrunakúra undir sólinni, leitaði hún sér hjálpar og fór í efnaskiptaaðgerð sem bjargaði heilsu hennar.
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:
💙 -HEILSUHILLAN. Breytingarskeið? Femarelle sem fyrsta meðferð.
🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!