Með lífið í lúkunum
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.
Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Með lífið í lúkunum
118. Beinþynning er hinn þögli sjúkdómur. (Næring, hreyfing, þyngdarstjórnunaraðgerðir, lyf og beinþéttni). Dr.Sigríður Björnsdóttir
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Í þættinum ræðir Erla við Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni um beinheilsu, hvað ákvarðar beinþéttni og hvers vegna við töpum beinþéttni í kringum tíðahvörf, hinn þögla sjúkdóm sem beinþynning er og hvað við getum gert með lífstíl okkar til þessa að fyrirbyggja eða snúa við þeirri þróun.
Þær ræða einnig um áhrif ofþjálfunar, átröskunar, þyngdarstjórnunaraðgerða og lyfja á beinheilsu okkar og hversu mikilvægt það er að reyna að koma í veg fyrir að beinþéttni minnki til þess að tryggja góða almenna heilsu og góð og sterk bein alla ævi.
Sigríður stofnaði síðuna Beinheilsa.is þar sem hægt er að nálgast fræðslu, aðstoð, næringar ráðleggingar og æfingarmyndbönd.
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:
💙 -HEILSUHILLAN. Nutrilenk- Vantar þig öflugan liðstyrk?
🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!