Með lífið í lúkunum
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.
Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Með lífið í lúkunum
112. Að draga úr ótímabærri öldrun. (Mataræði, hormónar, bætiefni, sykurfíkn, styrktarþjálfun ofl). Þorbjörg Hafsteinsdóttir
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Í þættinum ræðir Erla við Þorbjörgu Hafsteinsdóttur, hjúkrunarfræðing, næringarþerapista, rithöfund og lífsstíls þjálfara um hennar bakgrunn og nálgun á heilsu, mýtur í mataræði, hormóna og konur, ótímabæra öldrun, sykurfíkn, bætiefni, þarmaflóru, mikilvægi styrktarþjálfunar, breytingarskeið kvenna og margt fleira.
Þorbjörg er einn helsti brautryðjandi landsins á sviði heilsueflingar og mataræðis og hefur í áratugi aðstoðað fólk bæði á Íslandi og í Danmörku, þar sem hún er búsett, að bæta heilsu sína og heilbrigði með fræðslu og ráðgjöf.
Hún hefur gefið út margar bækur og er með ýmis námskeið í boði á thorbjorghafsteins.is
💙 -HEILSUHILLAN. Bio Kult- góðgerlar eru frábær viðbót inn í daglega rútínu.
🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 -VIRKJA. Ertu á krossgötum? Prófaðu tíma í markþjálfun.
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!