Með lífið í lúkunum
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.
Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Með lífið í lúkunum
110. Allt mótlæti kemur frá okkur sjálfum. (Ævintýri, ögrun og sjálfsþroski). Inga Þóra Ingadóttir
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Í þættinum ræðir Erla við Ingu Þóru Ingadóttur, dásamlega stelpukonu um ævintýri lífsins, áskoranir, að ögra sjálfum sér, sjálfsvinnu, tækifæri og hvernig það er að flytja í ný lönd og kynnast ólíkri menningu.
Inga er algjör nagli en samt með svo ótrúlega róandi og trausta nærveru sem skín í gegn í viðtalinu. Hún er íþróttakona, þjálfari og móðir sem brennur fyrir það að hjálpa fólki að vera besta útgáfan af sjálfu sér. Hún þjálfar nú hjá Mayhem perfomance coaching hjá Rich Froning sem er einn frægasti Crossfittari heims og elskar að takast á við krefjandi verkefni.
Áhugasamir geta fundið Ingu á Instagram.
Samstarfsaðilar hlaðvarpsins eru:
💙 -HEILSUHILLAN. Hefur þú prófað GUM batterístannburstann?
🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal.
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!